Grunnréttur til orlofs er 24 dagar 10,17%
Eftir tvö ár í iðninni 25 dagar 10,64%
Eftir þrjú ár í iðninni 27 dagar 11,59%
Eftir þrjú ár hjá sama vinnuveitanda 29 dagar 12,55%*
Hjá sama fyrirtæki í fimm ár 30 dagar 13,04%
*Sá sem öðlast hefur 29 daga rétt, glatar honum ekki þó svo hann skipti um vinnustað.
Samkvæmt orlofslögum skal orlof veitt í einu lagi á tímabilinu 2. maí til 15 september.
Þeir sem samkvæmt ósk vinnuveitanda fá ekki 21 dags sumarleyfi á tímabilinu 2. maí til 30. september, skulu fá 25% lengingu á þeim hluta orlofsins, sem veittur er utan ofangreinds tíma.