Reiknisnúmer:  537-26-590  Kennitala:  500796-3089

 

Sumarleiga.

Innvinnsla punkta:
Félagsmaður vinnur sér inn einn punkt fyrir hvern mánuð sem að greitt er af honum í sjóði MATVÍS. Þetta þýðir að hann ( félagsmaðurinn ) fær tólf punkta á ári að hámarki.
Því er afar mikilvægt að launagreiðandi skili inn skilagreinum mánaðarlega til þess að punktastaða félagsmanns sé sem réttust.

Punktanotkun:
Fái félagsmaður úthlutaða orlofsíbúð/hús yfir sumarmánuðina dragast punktar frá eftir því hvenær á sumri leigan fer fram.

Dæmi: Vegna leigu fyrstu vikurnar í júní og síðasta vikan í ágúst dragast frá tólf punktar. Eftir því sem nær dregur háanna tíma hækkar punktafrádrag og verður að hámarki þrjátíu og sex punktar þ.e. innvinnsla þriggja ára ( 3 x 12 punktar ).

Ef að tveir eða fleiri félagsmenn sækja um sama hús/íbúð sömu vikuna fær sá sem að hefur áunnið sér fleiri punkta.

Vetrarleiga.

Ekki eru teknir punktar vegna vetrarleigu og þá gildir reglan að fyrstur kemur/hringir, fyrstur fær.

Hægt er að panta hús/íbúð vegna tímabilsins september til loka desember frá 1. ágúst sama ár.

Pantanir vegna tímabilsins, janúar til júní geta borist frá 1. október.

Verð.

Sumarleiga  28.000

Helgarleiga að vetri 14.000. Helgarleiga er föstudagur til mánudags.

Aukadagar að vetri 4.000