Persónuverndarstefna MATVÍS (Matvæla- og veitingafélag Íslands).
Við hjá MATVÍS erum stolt af þeirri þjónustu sem við veitum og því trausti sem okkar
félagsmenn bera til félagsins. Okkur er ljóst að til að viðhalda þessu trausti og tryggja
fagmennsku í okkar starfi verðum við að tryggja persónuvernd okkar félagsmanna. Í þessari
persónuverndarstefnu eru útskýrðar starfsvenjur okkar hvað varðar þær persónuupplýsingar
sem við tökum við, vinnum með og eyðum.
Söfnun og notkun persónuupplýsinga.
• MATVÍS vinnur með persónuupplýsingar félagsmanna sinna og vistar þær í
upplýsingakerfum sínum.
• MATVÍS leggur ríka áherslu á að tryggja öryggi persónuupplýsinga félagsmanna sinna.
• MATVÍS sér til þess að farið sé með allar persónuupplýsingar í samræmi við lög,
reglugerðir og reglur um persónuvernd.
• MATVÍS vinnur einungis með þær persónuupplýsingar sem þarf til að geta veitt þá
þjónustu sem sambandinu ber að veita félagsmönnum sínum.
• MATVÍS ábyrgist að nýta sér ekki upplýsingar um félagsmenn á annan hátt er lög og
reglur kveða á um.
• Allar upplýsingar sem félagsmenn MATVÍS láta félaginu í té eða sem MATVÍS sækir
með þeirra leyfi til þriðja aðila eru eingöngu sóttar í þeim tilgangi að hægt sé að veita
félagsmönnum þá þjónustu sem þeir eiga rétt á.
• Allir starfsmenn MATVÍS skuldbinda sig svo langt sem lög og dómstólar leyfa til að
gæta þagnarskyldu um hvaðeina er varðar félagsmenn MATVÍS.
• Persónuupplýsingar félagsmanna MATVÍS eru einungis aðgengilegar þeim
starfsmönnum MATVÍS sem starfa sinna vegna þurfa að hafa aðgang að þeim.
• Þagnarskylda starfsmanna MATVÍS helst eftir að starfssambandi líkur.
• MATVÍS notar persónuupplýsingar eingöngu í þeim tilgangi sem þeirra var aflað.
Persónuupplýsingar veittar þriðjaaðila.
• MATVÍS a áskilur sér rétt til að deila persónuupplýsingum með þriðja aðila að því marki
sem þarf til að geta sinnt félagsmönnum og uppfylla skyldur félagsins.
• MATVÍS mun ekki samþykkja að deila persónuupplýsingum með þriðjaaðila nema
félaginu sé það skylt samkvæmt lögum, skv. dómi eða að beiðni félagsmanns.
Eyðing persónuupplýsinga.
• Persónuupplýsingum verður eytt með tryggum hætti, biðji félagsmaður um það og lög
og reglur standi því ekki í vegi.
• Persónuupplýsingar í bókhaldsgögnum eru varðveidd í 7 ár.
• Viðkvæmum persónuupplýsingum er eytt um leið og þeirra er ekki lengur þörf.
Þjónustuaðilar (Vinnsluaðilar)
• MATVÍS notast við trausta samstarfsaðila sem sjá um vinnslu á persónuupplýsingum,
vistun og eyðingu. MATVÍS deilir persónuupplýsingum með þeim eins og nauðsyn
krefur og heimildir félagsmanna leyfa.
• MATVÍS hefur skipulagt vörslu sína og vinnslu á persónuupplýsingum hjá
vinnsluaðilum þannig að þau séu varin með tryggum hætti.
Aðgangur að persónuverndarupplýsingum og eyðing.
• Félagsmenn MATVÍS geta óskað eftir aðgangi að persónuupplýsingum sínum og mun
MATVÍS veita aðgang að þeim upplýsingum.
• Félagsmenn geta farið þess á leit við MATVÍS að persónuupplýsingum um þá verði
eytt. Standi lög eða reglur því ekki í vegi, verður upplýsingunum eytt með tryggum
hætti.
Öryggisráðstafanir.
• MATVÍS beitir ýmsum aðferðum til að koma í veg fyrir að persónuupplýsingar komist í
hendur óviðkomandi aðila.
• MATVÍS mun tilkynna viðkomandi um öryggisbrest líkt og lög kveða á um, ef í ljós
kemur að persónuupplýsingar hafi borist til óviðkomandi aðila.
Persónuverndarfulltrúi.
• MATVÍS hefur ráðið, Ólaf Karl Eyjólfsson, lögmann, sem persónuverndarfulltrúa
MATVÍS.
• Félagsmenn MATVÍS geta sent erindi á Ólaf Karl Eyjólfsson, ef þeir telja að
persónuupplýsingum um þá hafi ekki verið safnað, unnið eða eytt með réttum hætti.
• Hægt er að senda erindi á olafurkarl@oklogmenn.is.
Breytingar á persónuverndarstefnu.
• MATVÍS mun breyta persónuverndarstefnu sinni ef þörf reynist. Gildistími hverrar
útgáfu er sá tími sem hún stendur á vefsíðu MATVÍS, dev.matvis.is.
Gildistími.
• Persónuverndarstefna þessi gildir frá 25. maí 2018.