Spennandi námskeið á matvælasviði eru á dagskrá IÐUNNAR fræðsluseturs. Fyrst ber að nefna fjögurra daga vinnusmiðju fyrir bakara með Josep Pascual, sem hefst þann 17. apríl. Josep fer yfir Pascual aðferðina; hæggerjun á brauði, skreytingar og aðferðir sem skila góðum árangri í keppnum í bakstri. Josep er virtur og margverðlaunaður bakari. Hann er yfirþjálfari spænska landsliðsins í bakstri og í dómnefnd á heimsmeistaramóti í bakstri.
Tveir dagar vinnusmiðjunnar eru helgaðir brauði og verður farið yfir 20 mismunandi, áferðir, bökunartækni og hönnun. Seinni dagarnir verða helgaðir sætabrauði og farið í mismunandi leiðir til gerjunar, skreytingar og hvernig má virkja sköpunargáfuna í þeirri vinnu. Fullt verð er 100 þúsund krónur en okkar félagsmenn greiða 25 þúsund krónur fyrir klukkustundirnar 24.
Þann 4. maí er á dagskrá námskeið þar sem farið er yfir þá möguleika til styrkja sem í boði eru í íslenskum iðnaði. Á þessu námskeiði er farið yfir þá möguleika sem eru í boði á styrkjum á Íslandi í minni og meðalstór verkefni í íslenskum iðnaði. Farið verður í grunnatriði umsóknar um styrki og það sem þarf að hafa í huga við skrif og upplýsingagjöf til sjóða og styrktaraðila.
Á námskeiðinu verða tekin ímynduð dæmi úr íslenskum iðnaði, til dæmis úr bílgreinum, byggingar-og mannvirkjagreinum og prent- og miðlunargreinum um verkefni sem eiga möguleika á styrkjum. Farið verður í hvað einkennir vel rökstutt verkefni og góða styrkjaumsókn og ábatann af því að sækja um styrki í verkefni. Fyrir hvern þátttakanda verður keypt tré til að binda á móti framkvæmd námskeiðsins.
Fjölbreytt vefnámskeið í boði
Þá stendur félagsmönnum til boða að sækja vefnámskeið af ýmsum toga. Þar má nefna námskeið um íslenskar jurtir í matargerð, hráverkun og pylsugerð, slátrun og kjöt mat og námskeið um sögun, úrbeiningu og mareneringu. Sjá nánar hér fyrir neðan.
- Íslenskar jurtir í matargerð
- Hráverkun og pylsugerð
- Slátrun og kjötmat
- Sögun, úrbeining og marenering.
- Söltun og reyking
- Örverur á kjöti
- Viskí
- Klassískir kokteilar
- Bjór og bjórstílar