![Lokadagur til að sækja um](https://dev.matvis.is/wp-content/uploads/2021/01/grimsnes.jpg)
Síðasti dagur til að sækja um orlofshús fyrir sumarið er í dag. Þeir sem eiga eftir að senda inn umsóknir þurfa því að hafa hraðar hendur.
Orlofshúsum verður venju samkvæmt úthlutað eftir punktakerfi. Sæki tveir eða fleiri um sömu eign á sama tímabili fær sá sem hefur fleiri punkta húsið.
Hér má sjá orlofshús MATVÍS. Sjö hús og íbúðir eru á Íslandi en auk þess hefur félagið til útleigu hús á Spáni og á Flórída í Bandaríkjunum.