Ertu 23 ára eða eldri og með þriggja ára starfsreynslu í iðngrein?
Raunfærnimat er leið til að meta þá færni og þekkingu sem öðlast má á vinnumarkaði. Matið getur mögulega stytt nám og verið hvatning tilað ljúka því. Þessi leið hefur skilað góðum árangri þar sem margir þátttakendur raunfærnimatsins hafa haldið áfram námi og lokiðsveinsprófi að loknu matinu.
Áformað er að raunfærnimat fari fram í eftirfarandi iðn- og starfsgreinum vorið 2018:
húsasmíði og múraraiðn
bifvélavirkjun, bifreiðasmíði og bílamálun
matreiðsla og matartækni
netagerð
skrúðgarðyrkja
Inntökuskilyrði í raunfærnimat:
23 ára aldur og 3 ára reynsla úr viðkomandi grein, miðað við fullt starf (staðfest með opinberum gögnum t.d. lífeyrissjóðsyfirlitum)
Nánari upplýsingar um raunfærnimat má finna á vef IÐUNNAR fræðsluseturs http://www.idan.is/raunfaernimat eða í síma 590 6400.