Launataxtar hækkka um 10.500 krónur 1. apríl næstkomandi og almenn laun um 7.875 krónur. Þessar hækkanir koma til greiðslu 1. maí. Forsendunefnd ASÍ og SA hafa komist að þessari niðurstöðu; að laun hækki vegna hagvaxtar líkt og kveðið er á um í kjarasamningum. Frétt af vef ASÍ má sjá hér fyrir neðan:
Forsendunefnd ASÍ og SA sem starfar samkvæmt kjarasamningum hefur hist og rætt hagvaxtarauka kjarasamninga. Líkt og greint var frá nýverið jókst landsframleiðsla á mann um 2,53% á síðasta ári. Þetta hefur þá þýðingu að hagvaxtarauki kjarasamninga hefur virkjast í fjórða þrepi.
Forsendunefnd ASÍ og SA hefur ákveðið að hagvaxtaraukinn komi til greiðslu 1. maí líkt og kveðið er á um í samningum. Launataxtar munu hækka um 10.500 kr. og almenn laun um 7.875 kr. frá 1. apríl og koma til greiðslu 1. maí.
Lífskjarasamningur var undirritaður í apríl 2019 þegar fyrirséð var að gjaldþrot lággjaldaflugfélagsins WOWair myndi hafa neikvæð áhrif á efnahagslíf. Samningurinn studdi við verðstöðugleika og skapaði forsendur fyrir lækkun vaxta. Greining Alþýðusambands Íslands á launahlutfalli hefur leitt í ljós að launahlutfall í hagkerfinu hefur verið stöðugt á samningstímabilinu.