Þar sem að færri komust að en vildu á námskeið um lífeyrismál, sem fram fara þriðjudaginn 9. nóvember og miðvikudaginn 10. nóvember hefur verið ákveðið að halda annað aukanámskeið. Það verður haldið fimmtudaginn 10. nóvember, klukkan 17:00. Námskeiðið verður haldið í fundarsalnum á Stórhöfða 31, á jarðhæð, eins og hin fyrri. Fagfélögin standa sameiginlega að námskeiðunum.
Skráning á námskeiðið fer fram í síma 5 400 100. Einnig er hægt að skrá sig hér. Athugið að makar eru velkomnir á námskeiðið, að undangenginni skráningu, en hámarksfjöldi er 60 manns.
Á námskeiðinu verður farið yfir helstu þætti lífeyriskerfisins og hvernig það virkar. Rætt verður um stoðirnar sem mynda lífeyrisgreiðslur og reynt að svara ýmsum spurningum sem varða lífeyrismál.